Facta lögfræðiþjónusta ehf.
Facta Lögfræðiþjónusta ehf. hefur gengið til liðs við Pacta lögmenn, www.pacta.is, frá 1. nóvember 2013.
Með þessari breytingu er stefnt að því að efla enn frekar þá lögmannsþjónustu sem veitt hefur verið einstaklingum og fyrirtækjum. Áherslan verður áfram á ráðgjöf til fyrirtækja, félagarétt og ráðgjöf tengda regluverki fjármálamarkaða. Í því felst m.a. ráðgjöf við kaup, sölu og samruna fyrirtækja, skráningarlýsingar, lögfræðilegar áreiðanleikakannanir og endurskipulagningu fyrirtækja ásamt málflutningi.
Breytingin feli í sér frábært tækifæri til þess að byggja upp frekari ráðgjöf á þessu sviði hjá Pacta með þeim góða hópi lögmanna sem þar er fyrir.
Nýtt netfang er hannes@pacta.is en farsímanúmer 669-7915.
---------------------------------------
Facta Lögfræðiþjónusta ehf. er öflug lögmannsstofa sem veitir fyrirtækjum og einstaklingum almenna lögfræðiþjónustu. Áherslan í starfi stofunnar er á fyrirtækjaráðgjöf, félagarétt og ráðgjöf tengda regluverki fjármálamarkaða en markmiðið er að veita framúrskarandi og persónulega þjónustu.
Lögmenn Facta lögfræðiþjónustu ehf. hafa víðtæka reynslu af úrlausn lögfræðilegra álitaefna og ráðgjöf tengda regluverki fjármálamarkaða, félagarétti og fyrirtækjaráðgjöf.
Svo eitthvað sé nefnt þá má geta þess að lögmenn stofunnar útbjuggu m.a. skráningarlýsingu vegna skráningu fyrsta breytanlega skuldabréfaflokks sem gefinn hefur verið út á Íslandi og þá veittu þeir ráðgjöf við eina stærstu skuldabréfaútgáfu sem átt hefur sér stað hérlendis. Einnig hafa lögmenn stofunnar unnið jafnt fyrir kaupendur og seljendur fyrirtækja og þá bæði þegar samruni fyrirtækja hefur átt sér stað og líka þegar um hrein og klár kaup hefur verið að ræða. Í tengslum við slík viðskipta hafa lögmenn stofunnar framkvæmt lögfræðilegar áreiðanleikakannanir. Þá má einnig geta þess að lögmenn stofunnar hafa umtalsverða reynslu af fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja auk þess sem þeir hafa veitt ráðgjöf vegna viðskipta fyrirtækja og einstaklinga við þrotabú/slitastjórnir bankanna sem féllu haustið 2008. Þá hafa lögmenn stofunnar einnig annast skiptastjórn í nokkrum fjölda þrotabúa.